Tímaritið Studia Theologica Islandica, Ritröð Guðfræðistofnunar, er gefið út sem veftímarit og er öllum aðgengilegt. Hægt er að nálgast tímaritið með því að smella hér.
Ritröð Guðfræðistofnunar inniheldur fræðigreinar á sviði guðfræði og trúarbragðafræði. Höfundar efnis koma úr hópi kennara og fræðimanna innan Háskóla Íslands og utan. Kennarar Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar sinna ritstjórn tímaritsins og núverandi ritstjórn skipa þau Haraldur Hreinsson lektor (ritstjóri), Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor og Sólveig Anna Bóasdóttir prófessor. Ritröðin kom fyrst út árið 1988.